Angela Merkel, kannslari Þýskalands, kallar eftir breytingum á grunnsáttmála Evrópusambandsins í kjölfar hins jákvæða dómsúrskurðar stjórnlagadómstóls Þýskalands gagnvart lögmæti björgunaraðgerða til handa aðildarríkjum Evrópusambandsins. Hún segir breytingar á Lissabon sáttmálanum nauðsynlegar til að komast út úr skuldavandanum. Í ræðu, sem margir telja þá mikilvægustu sem kannslarinn hefur haldið, sagði Merkel að úrskurðurinn hefði styrkt stefnu ríkisstjórnar hennar og rutt brautina fyrir endurbótum er geri ESB kleyft að ráða við skuldir sínar.Evrópuþingið hefur gefið út yfirlýsingu sem ætlað er að opna á endurskoðun sáttmálans.
EurActiv
Engin ummæli:
Skrifa ummæli