Dómstóll Evrópusambandsins hefur úrskurðað að Evrópuþinginu sé skylt að birta umdeilda skýrslu, þar sem fram kemur að þingmenn hafi misfarið með fé sem ætlað er til að greiða aðstoðarmönnum á þingi. Dómstóllinn ógilti synjun þingsins um aðgang að skýrslunni, á þeim grundvelli að birting hefði grafið undan trúverðugleika innri endurskoðunar. Þingið getur nú farið með málið fyrir Evrópudómstólinn, en sú leið hefur mætt andstöðu nokkurra þingmanna.
Í skýrslunni kemur fram að umrætt fé til aðstoðarmanna rann í einhverjum tilvikum til fjölskyldumeðlima, réttindalausra starfsmanna, stjórnmálaflokka á landsvísu, auk þess sem einhverjir högnuðust persónulega. Einn þingmaður greiddi einum aðila allan árlega styrkinn, sem nam 200.000 evrum.
miðvikudagur, 8. júní 2011
Aðstoð vegna E. coli faraldurs
Landbúnaðarstjóri ESB, Dacian Ciolos, hefur óskað eftir 25 milljarða fjárhagsaðstoð til handa evrópskum grænmetisbændum sem hafa orðið illa úti vegna E. coli faraldursins. Tillagan verður rædd á fundi landbúnaðarráðherra ESB í Lúxemborg í dag. Landbúnaðarstjórinn segir að án vitneskju um uppsprettu faraldursins verði erfitt að endurvinna traust neytenda. Meira en 2.300 manns í 14 löndum hafa veikst, aðallega í Þýskalandi, og 25 hafa látist af völdum E. coli bakteríunnar. Skaði fyrir grænmetisframleiðendur er enn óvís, en áætlað er að hann muni nema hundruðum milljóna evra.EU Observer: EU calls for €150m in aid for farmers hit by E. coli scare
Efnisorð:
Landbúnaðar- og sjávarútvegsmál
þriðjudagur, 7. júní 2011
Króatía að ljúka aðildarviðræðum
Króatía hefur nýlokið samningalotu um fiskveiðistjórnunarkafla aðildarsamnings síns um inngöngu í Evrópusambandið. Aðalsamningamaður landsins, Vladimir Drobnjak, telur að samningaviðræðum verði senn lokið.
Þeir fjórir kaflar sem enn er ólokið eru: kafli 23- Dómskerfi og mannréttindi, kafli átta- Stefna í samkeppnismálum, kafli 33- Fjármála og fjárlaga ákvæði og kafli 35- Önnur mál, sem er af tæknilegum toga.
Umdeildasti kafli viðræðnanna er kaflinn um Dómskerfi og mannréttindi,
Þeir fjórir kaflar sem enn er ólokið eru: kafli 23- Dómskerfi og mannréttindi, kafli átta- Stefna í samkeppnismálum, kafli 33- Fjármála og fjárlaga ákvæði og kafli 35- Önnur mál, sem er af tæknilegum toga.
Umdeildasti kafli viðræðnanna er kaflinn um Dómskerfi og mannréttindi,
Efnisorð:
Aðildarviðræður
Gerast áskrifandi að:
Færslur (Atom)

